top of page

AÐ VERA GARÐAR SÖLVI - LÍFSTILRAUN

Skráning Garðars
skraning_umbunarkerfi
IMG_0493
sjodsbok5
sjodsbok_forsida
heimilisbokhald
sjodsbok7
IMG_0493_edited_edited
IMG_0493_edited
heimilisbokhald2
sjodsbok
sjodsbok3
sjodsbok4
sjodsbok6
kíktu í bækurnar hans Garðars
Reynsla
Reynsla nemenda
Anchor 1

 

Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta gæti haft áhrif á hann, en ég fann mikinn mun á mér bara á þessum fimm dögum

á eftir að nýta mér ýmislegt sem ég lærði í því (að gera verkefnið), sérstaklega að setja mér ákveðin markmið, skrifa þau niður og merkja við hvort ég hef náð þeim eða ekki og að umbuna mér ef vel tekst til. Jákvæð styrking er af hinu góða og hvetur mann áfram til góðra verka.

Ég græddi á því að vera Garðar Sölvi í þessa fimm daga.

 

Sunneva Hjaltalín

 

 

Ég er einstaklega ánægð með niðurstöðurnar þar sem ég er að koma sjálfri mér skemmtilega á óvart með því að hafa tekist að uppfylla öll mín markmið ... Svo er líka bara svo gaman að njóta verðlaunanna eftir á og getað hugsað ,,I did it!” með

Ég ætla að gera umbunarkerfi að vana hjá mér þar sem mér hefur gengið svo einstaklega vel í þessari viku og bara skipulagið á mér er svo miklu betra en áður. Svo er aldrei að vita nema að einn daginn að maður geti sleppt umbuninni vegna þess að þessir hlutir verða orðnir svo sjálfsagðir og þá verð ég að finna mér ný markmið og nýjar umbanir.

 

Íris Una

 

Ég hef lengi leitað af hinni fullkomnu leið til að spara og hver veit nema hún sé fundin.  Ég er líka handviss um að svona jákvæð hvatning sé góðs viti.  Að hvetja sjálfan sig áfram í að gera leiðinleg húsverk o.fl. gerir verkin skemmtilegri. 

 

Sunneva Líf Blomsterberg

 

 

Ég lærði helling á þessu og er ég alveg viss um að þetta sé hlutur sem ég mun nýta mér áfram. Með því að skrifa niður þó það sé ekki nema bara vika fær maður smá sjokk að sjá hversu mikill peningur fer í ekki neitt. Þetta er bara jákvætt og hefur þetta opnað hug minn um það hvað ég er að kaupa mikið drasl. Ég er ekki frá því að þetta hafði meiri áhrif á mig en það sé ég bjóst við.

 

Bryndís Rut

 

bottom of page